It´s my life

Birna Margrét Björnsdóttir

21.02.2008 01:44:07 / birnam

halló, halló!

Ætlaði að vera voða nett á því áðan og setjast við tölvuna með það eitt að markmiði að flakka bara um netið og jafnvel að blogga, var meira að segja búin að hella í eitt stykki hvítvínsglas og ætlaði heldur betur að tölvast og hafa það gott... en þá var netið með stæla við mig, ég bara komst ekki á eina einustu síðu og áhuginn á bloggskrifum dvínaði með hverri sekúndu sem leið og ég búin með, tja fleiri en eitt glas :lol:

En þetta reddaðist að lokum, en nú er mín bara orðin svo sibbin að ég nenni ekki skrifa neitt merkilegt. En ég er að fara suður í fyrramálið með krakkana og við ætlum að renna í heimsóknir hingað og þangað, það verður bara gaman. Ætla láta þetta duga í bili, vonandi gengur þetta betur hjá mér næst :haha:

Kv. Bernie


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 02:43:05 / birnam

Ja goddag........

Sit hérna stjörf af þreytu við tölvuna að dunda mér eitthvað meðan litli þrjóskupúkinn minn þrjóskast við að fara sofa :S Hann er gjörsamlega búinn að snúa sólarhringnum við pilturinn og þrjóskast hvað hann getur að sofna á kvöldin sama hvað ég geri. Getur einhver sagt mér hvað maður gerir við svona þráablóð?

En allavega þá átti Daníel minn afmæli í dag og varð hann 8 ára gæinn 8) bekkarsystkini hans komu kl.16 í dag og svo fjölskyldan 17. Þetta var mjög fínt í alla staði þó ég segi sjálf frá og hann hæstánægður með daginn sem er aðalatriðið.

En svo að maður vaði úr einu í annað... hvað er málið með þessa jafnréttisumræðu? Lenti inná bloggsíðu áðan hjá einhverjum feminísta og hún var að velta því fyrir sér af hverju væru engir kvenkyns jólasveinar.... já hérna hefur fólk EKKERT þarfara að gera en að velta sér uppúr svona löguðu???  Tel mig nú ekki vera feminísta þó ég hafi fengið það framan í mig frá vissum aðila :) en mér finnst alveg þörf á að jafna rétt kynjanna, t.d. í sambandi við launakjör og fleira. En kynjakvóti og jólasveinkur, hættiði nú alveg!

Eriggi allir í stuði!?

Hvernig væri svo að commenta eitthvað, eða bara kvitta fyrir komuna. Yrði mjög þakklát :haha:

Friður 


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 12:07:23 / birnam

Koma svo og vera með!

1.hvað heitir þú?

2.hvað ertu gamall/gömul?

3.ertu á lausu eða föstu?

4.hvaða tónlist hlustaru mest á?

5.hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?

6.hvaða 5 hlutir minna þig á mig?

7.ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru svara?

8.hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

9.hver er “Idolið” þitt?

10.hvern þykir þér vænst um?

11.ertu ástfangin/n?

12.hefuru verið ástfangin/n?

13.Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?

14.ætlaru að plögga þessu á síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá þér?

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 12:31:11 / birnam

Þar sem ég nenni ekki að blogga ákvað ég að skella einum góðum brandara hér inn ;)

Hjón nokkur fóru á fæðindardeild til að fæða barn sitt. Þegar þau komu
þangað sagði læknirinn að hann hefði fundið upp tæki sem færði hluta af
fæðingjarverkjum frá móður til föður. Hann spurði hvort þau væru tilbúin
að prufa tækið. Þau voru bæði spennt fyrir því. Læknirinn byrjaði á 10%
þar sem þar væri líklega meiri verkur en eiginmaðurinn hefði áður
upplifað. Eftir því sem lengra leið á fæðinguna bar maðurinn sig vel og
sagði lækninum að hækka í tækinu. Læknirinn hækkaði í 20% og síðan í 50%.
Enn var eiginmaðurinn stálsleginn og bað lækninn að færa alla verkina yfir
á sig.

Fæðingin gekk mjög vel og móðirin fann ekkert fyrir öllu saman.
Eiginmaðurinn var stálsleginn.

Þegar þau komu heim lá bréfberinn dauður á tröppunum fyrir framan húsið.

hahahaha!!! 

Kv. Bernie


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 13:18:22 / birnam

það er komið sumar... loksins!

Það er svolítið skrýtið að finnast sumarið vera að byrja í lok ágúst þegar skólinn er að byrja, en þannig líður mér akkúrat núna sumarið er búið að vera svo lélegt hérna. Í gær var um 20 stiga hiti en soldið hvasst en svo fór að lægja seinnipartinn og var svo æðislegt í gærkvöldi, stillt og fínt. Og það á víst að vera gott norðan og austanlands næstu daga, gott mál.

Fann á netinu um daginn ódýra netframköllun, bonusprint.com og sendi þangað 300 myndir og það kostaði alveg 3.500 kr. með sendingarkostnaði, tolli og vsk. Fari netframköllun á Íslandi til $&$%"&#$%&#!

Nú er Agnar byrjaður að vinna aftur, Daníel farinn í skólann og Helga byrjuð í leikskóla þannig að við Árni höfum það bara gott hérna heima, kúrum frameftir og dúllum okkur eitthvað 8)

Erum að fara í sumarbústað á Einarsstöðum á morgun og verðum yfir helgina, Daníel er að fara keppa í frjálsum á Egilsstöðum. Ef einhver verður á ferðinni fyrir austan þá velkomið að kíkja ;)

Skráði mig í 1 fag í skóla í haust bók303, nenni bara ekki meiru núna, svo líka veit maður ekkert hvað maður hefur mikinn tíma aflögu. Ætla bara sinna þessu vel og hafa gaman af þessu, gerði það nefnilega ekki fyrir áramótin síðustu og svo eftir áramót, var í svo miklu að það var bara orðin kvöð, snerist allt um að læra og ef maður gerði eitthvað annað að þá naut maður þess ekki því manni fannst að maður ætti frekar að vera læra, nei takk ekki aftur :klikk:

Svo erum við alltaf að spá í húsamál hjá okkur... það er þröngt hjá okkur núna og verður ennþá þrengra um okkur í fremtiden, sem mér finnst mjög gremjulegt því mér líður svo vel hérna uppfrá og íbúðin skemmtileg, en ég sé ekki að þetta gangi upp að vera hér. Það vantar allavega 1 herbergi í viðbót og þvottahús. Er að verða brjáluð á því að vera með þvottagrindina, barnavagninn og tölvuna inni í stofu :evil:

Hef verið að spá í hvort það myndi ganga upp að gera 1 svefnherbergi fyrir krakkana, þannig að þau myndu öll sofa í sama herbergi og svo 1 leikherbergi þar sem þau gætu leikið sér, verið með sjónvarp, tölvu og þess háttar. En ég veit ekki hvort það myndi ganga upp :$ ef þið hafið einhverjar hugmyndir handa mér þá eru þær mjög vel þegnar :lol:

Ég byrjaði að fara í íþróttahúsið í síðustu viku og er það æðislegt, ætla fara alltaf 3svar í viku og labba hina dagana, fékk nefnilega áfall um daginn þegar ég vigtaði mig, var 10 kg þyngri en áður en ég varð ólétt. Tölurnar verða ekki gefnar upp :^)

Jæja, best að fara gera eitthvað

seeya 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 20:16:06 / birnam

Halló halló

Já ég er á lífi, hef bara ekki nennt að blogga undanfarið, get nú ekki notað þá afsökun að ég hafi ekki haft tíma vegna þess að ég er með ungabarn, því hann ÁRNI RÚNAR er svo góður að mér finnst stundum eins og ég sé ekki með ungabarn. Hann var skírður síðustu helgi, laugardaginn 28. júlí og fékk eins og kom fram hér á undan nafnið Árni Rúnar. Það gekk allt saman mjög vel, vonum framar eiginlega og þurftum við nánast ekkert að hafa fyrir þessu öllu saman. Hrönn tengdó bakaði eins og vitleysingur fyrir þetta og mamma tók svolítið að sér líka og er ég MJÖG þakklát fyrir það. Eina sem ég gerði var að skella í 1 heitan rétt og 2 heitar brauðrúllur og svo var skírnartertan frá bakaríinu við brúnna á Akureyri og var hún æðisleg.

Hann Árni Rúnar fékk mjög fallegar gjafir og vil ég þakka enn og aftur fyrir þær! Það var rosalega gaman hvað margir komu til að fagna þessu tilefni með okkur og vil ég ítreka það að það er skyldumæting aftur að ári :haha:

Anný frænka og Þröstur kærasti hennar komu með krossarahjól með sér hingað austur og haldiði að kella hafi ekki skellt sér einn hring á hjólinu og var það algjör snilld!

Svo erum við skötuhjúin búin að eignast sameiginlegt áhugamál, EBAY! Shit hvað maður getur misst sig þar. Erum búin að kaupa svaka fatapakka á Daníel, notuð en flott föt, allt saman Nike, Gap, Adidas og fleira. Svo erum við líka búin að kaupa leikinn Buzz music quiz í playstation á skít og kanil. En ég get ekki að því gert, ég er alltaf hálfsmeyk við að setja kortanúmer og svona á netið. Ef einhver hefur reynslu af því að versla á ebay endilega fræða mig hérna í commentunum.

Það verður nú sennilega ekki hundi út sigandi á morgun, spáir hávaðaroki og rigningu í nótt og á morgun, getur farið yfir 30 metra á sek. Hvað er að! Þetta sumar er búið að vera ömurlegt hérna. Sunnlendingarnir hafa vinninginn hvað það varðar þetta sumarið, helvískir :evil:

Komin ný skoðanakönnun hér til hliðar, endilega taka þátt, og hvernig væri nú að kvitta! 

Jæja, skyldan kallar

Later...

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 15:14:47 / birnam

En 25. júní var það!!!

Ein stutt og laggóð færsla hérna.

Drengurinn ákvað loksins að koma þann 25. júní og slapp ég við það að vera sett af stað í þetta skiptið, bara montin með það! Þetta var eins og í bíómyndunum, var nýsofnuð og vaknaði með einhverja smáverki, hugsaði með mér að þetta væru bara einhverjir platverkir eina ferðina enn. Svo hugsaði ég um það að fara pissa í svona hálftíma eða svo og stóð svo loksins upp akkúrat kl. 3 um nóttina, og þá fossaði bara legvatnið niður á gólfið um leið og ég stóð upp, fór ekki dropi í rúmið. Þarna stóð ég í pollinum og trúði ekki mínum eigin augum og byrjaði að kalla á Agnar, ótrúlegt en satt þá þurfti ég bara að kalla 2svar á hann og hann var vaknaður og ég hef aldrei séð hann hendast svona á fætur :haha: en við fórum fljótlega uppá sjúkrahús og hann fæddist 9.51 og var hann heilar 18 merkur og 54 cm og er alveg yndislegur.

Við höfum það mjög gott og hann er vær og góður. Hann verður skírður 28. júlí og er kominn með heimasíðu á barnalandi, www.agnarsson.barnaland.is

Ætla láta þetta duga í bili

blessó


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 17:25:24 / birnam

Ekki var það 20. júní

Jæja, ekki stóðst spáin hjá Danna mínum, en sama hvernig á þetta er litið þá styttist þetta. Það er aldrei meira en rúm vika eftir, þá verður hann bara sóttur pjakkurinn, já ég er að peppa mig upp, ekki veitir af!

Furðulegt veðrið hérna á Selfossi, alls ekki slæmt en í þónokkra daga hefur verið þungskýjað fram á seinnipart, þá rífur hann af sér og kemur glampandi sól, þannig að ég hef verið að bíða með að fara í sund allan daginn þangað til hann léttir eitthvað til svo maður nái sér í smá lit.

Í gærdag komu Einsi bró og kærastan hans Tinna í heimsókn og svo fórum við í grill heim til hennar í gærkvöldi, bara gott!

Það er mikið skordýralíf hér á Selfossi, Agnari til mikillar ánægju ;) köngulærnar hanga hér í röðum við alla glugga og vefir út um allt. Svo erum við búin að ná 4-5 stórum flugum hérna inni sem suða eins og randaflugur en eru einhverskonar risageitungar, frekar ósmekklegar!

Ætla halda áfram að púsla...

Bernie

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 13:40:03 / birnam

Guð gefi mér þolinmæði... NÚNA STRAX!!!

Já halló, ég er mætt á suðurlandið aftur. Er orðin eins og hvalur og er alveg til í að fá slappa magann minn aftur. Var sett þann 17. júní en ekkert gerist enn og miðað við fyrri reynslu þá gerist ekkert strax því nú ver og miður, en auðvitað vonar maður það besta. Erum búin að bralla ýmislegt frá því við komum suður, t.d. að reyna nokkrar tilraunir til að kaupa bíl, en okkur er greinilega ekki ætlað að gera það á þessum tímapunkti. Getið lesið allt um það á heimasíðunni hjá Agnari, www.grogginn.bloggar.is 

Fórum í skoðun í morgun og ef ekkert verður búið að gerast að viku liðinni, þá eigum við að mæta uppá fæðingadeild og ég verð sett í monitór til að athuga hvort stubburinn hafi það ekki gott, ég held að hann hafi það bara alltof gott þarna inni! En það verður líka kannski athugað með að hreyfa við belgnum eða sprengja hann og sjá hvort eitthvað gerist. Vonandi verð ég bara búin þá. Daníel er nú alveg harðákveðinn í því að bróðir sinn fæðist 20. júní, það væri nú svolítið skondið ef svo yrði, og ég yrði bara nokkuð sátt!

En þetta er ótrúlega erfitt að vera svona að heiman, frá krökkunum og öllu og bíða svona. Ef maður ætlar alltaf að vera gera eitthvað þá er maður fljótur að fara á hausinn, því það er nú fátt sem er ókeypis. Jæja, hef ekki tíma til að bulla meira hérna, brjálað að gera ;)

En endilega, þeir sem eru extra þolinmóðir, endilega senda mér smá í hraðpósti...

Best regards

Hvalurinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 22:22:15 / birnam

Home sweet home

Jæja, þá er maður kominn heim í sveitasæluna :D alltaf gott að skreppa aðeins í burtu og besta við það að það er svo gaman að koma heim aftur.

En á laugardaginn fórum ég, Daníel og pabbi í sundlaugina á Selfossi og svo fórum við mæðgin í bíó á myndina Meet the Robinsons. Ágætis mynd, allavega byrjunin og endirinn, miðjan var víst fín að sögn Daníels... mín nefnilega hakkaði í sig nachos og ostasósu og eitt stykki súkkulaði í byrjun myndarinnar og sofnaði síðan... 8) virkilega gott að fá sér svona síðdegisblund, tala nú ekki um það ef maður er búin að belgja sig út á einhverju gotteríi :lol:

Svo var brunað í bæinn og við skildum pabba eftir í Breiðholti og yfirtókum bílinn hans og fórum í Mosó. Þar voru Ásrún og co nýkomin úr sveitinni, á fullu í eldhúsinu að malla æðislegan kjúklingarétt sem var alltof góður! Og ég komst að því í dvölinni hjá þeim að ég er algjörlega búin að gleyma hvernig tæplega 2. ára börn eru 8| hann Kristófer Alexander er þokkalega handóður, það var allt gjörsamlega í stórhættu sem var nálægt honum, og miðað við hvernig litli kúturinn minn lætur í belgnum á mér, þá held ég að ég geti alveg farið að undirbúa mig fyrir smá hasar og læti! :lol: Spurning um að fá Kristófer lánaðan í smá þjálfun fyrir okkur hahaha!

En þegar skæruliðinn var farinn að sofa var bara slakað á og horft á mynd, Bandidas held ég að hún heiti, með Selmu Hayak og henni þarna Cruz. Fínasta mynd. Á páskadag var liðið komið framúr um hálfátta, Daníel fór fram og fékk páskajógúrt og byrjaði síðan að leita að páskaeggjunum sínum og var það svaka stuð, og svo var náttúrulega ekkert annað að gera en að háma í sig. Ég kom nú aðeins fram og þóttist vera svaka dugleg að fara á fætur, en þá vildi Daníel endilega koma aftur uppí að kúra og ég auðvitað neitaði því ekki og var fljót að taka boðinu, en það var nóg fyrir hann að liggja hjá mér í ca 5 mínútur þá vildi hann fara fram aftur og þá náttúrulega nennti ég ekki á fætur. Þannig að ég lúrði bara aðeins lengur, en ég held að hann hafi alveg vitað hvað hann var að gera, bara svæfa mömmu sína, sem er ekki erfitt :lol:

Svo rétt fyrir hádegi þegar var kominn fótaferðatími á mig skellti ég mér í sund með Daníel, Ingu Mæju og Söndru Lind í Árbæjarlaugina, og þar var gjörsamlega stappað af fólki, enda líka önnur laugin af tveim sem var opin í Reykjavík á páskadag að mér skilst, merkilegt að ég skyldi hitta á hana :$ svo eftir sundið voru allir orðnir vel svangir fórum við aftur í Mosó þar sem okkar biðu brauðtertur, uppáhaldið mitt!!! og það var náttúrulega étið á sig gat!

Var svo ferðinni heitið niður í Laugardal í skautahöllina þar sem Konni og krakkarnir fóru á skauta, en mikið djöfull langaði mig! Tók bara ekki sjensinn... en ég neyddist til að fara út á svellið einu sinni, á skónum, á eftir litla skæruliðanum Kristófer, það var bara fyndið! Allt í einu er hann horfinn og ég sé að hann er bara kominn út á mitt svell nánast, þannig að ég fima, netta manneskjan, tók bara stökk og skautaði á eftir honum, svo kom Konni til bjargar.

En það var alveg dásamlegt að sjá Daníel á skautum, hann hefur örugglega dottið svona 230 sinnum, en hann segist nú bara hafa dottið 20 sinnum, alveg með það á hreinu! En alltaf stóð hann upp aftur og hélt áfram að skauta, nema kannski 2svar, þá líka datt hann frekar illa greyið :(

Eftir skautana drifum við Daníel okkur uppí Breiðholt að sækja pabba og lentum aðeins í kaffi þar hjá Elsu, svo rúlluðum við af stað á Selfoss því við ætluðum að elda læri sem varð síðan ekkert úr því við vorum svo seint á ferðinni, þannig að við komum bara við á pylsubarnum á Selfossi og fengum okkur skyndibita.

Á mánudag eða annan í páskum elduðum við loksins lærið góða, og gerðum það í hádeginu aldrei slíku vant. Mjög skrítið að borða svona máltíð í hádeginu og það var nú vegna þess að Hrund bauð mér og Daníel í hrygg um kvöldið :haha: þokkaleg kjötveisla þann dag!  Svo fórum við auðvitað í sund og svo í bæinn til Hrundar. Þar var mikið borðað og spjallað og svo fór Hrund með okkur á flugvöllinn. Á flugvellinum á Egs hljóp Daníel í fangið á Agnari, sem var frekar sætt, enda var hann farinn að sakna hans mikið, já og við bæði :cry: Svo tók við keyrslan til Vopna, sem tók nú ekki nema 1 og 1/2 tíma því það var bara sumarfæri, aðeins hvasst.

En það er gott að vera kominn heim, og það var mjög gaman hjá okkur um páskana, æðislegt að hitta alla og breyta um umhverfi. 

En jæja, nóg bull í bili.

Ble ble ble ble 


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 22:26:51 / birnam

Selfoss city

Þeir sem þekkja mig eitthvað vita að ég er tækifærissinni dauðans og ættu ekki að vera hissa á að heyra það að ég skellti mér í bæjarferð um páskana með mjög litlum fyrirvara :lol:

já ég og Daníel skelltum okkur suður í menninguna og fórum með flugi frá Egs í gær. Pabbi sótti okkur á flugvöllinn í Rvík og það var brunað beint á Selfoss.

Í morgun, já eða rétt undir hádegi var svo skellt sér í sundlaugina hérna á Selfossi, sem er himnesk, fer daglega í hana þegar ég kem hingað. Svo var brunað í Kefló og við fórum í heimsókn til Helga bróðir og hittum hann og syni hans Erling, Tómas og Þorstein sem hafa stækkað og breyst alveg hroðalega frá því síðast, enda líka orðið langt síðan að maður sá þá... Einar bróðir kom heim til Helga og það var bara gaman að hitta hann... "litla" bróðir ;)

Svo brunuðum við í bæinn og var ákveðið að fá sér að borða þar, þar sem ólétta konan var eitthvað svöng, eða réttara sagt að farast úr hungri. Niðurstaðan var Pizza hut og fórum við í smáralindina til að borða þar en þar voru ægileg læti og eftir smá athugun komumst við að því að það var verið að taka upp X factor þáttinn og ekki verandi þarna inni, allavega ekki fyrir pabba :lol: þannig að við brunuðum á staðinn við sprengisand og guð hvað ég borðaði 8)

svo skruppum við í heimsókn til Hrundar, Annýar og Ísaks og var það mjög fínt. Daníel og Ísak smullu saman og við vissum ekki af þeim. Strúna hringdi síðan í mig og bauð mér í mat á morgun, og kannski gistum við hjá þeim, þau voru nú eitthvað að tala um að draga kasóléttu konuna á skauta, það verður eitthvað gáfulegt :haha:

Svo spáði einhverju skítaveðri í dag hér á suður- og suðvesturlandi, en ótrúlegt en satt að þá var meira að segja bara sól og blíða í Kefló :P

Kv. frá Selfossi

Bernie

P.S. Hvernig væri svo að KVITTTA!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 12:37:44 / birnam

Það er sko lítið mál að gera konum til geðs...

Hvernig gera á konu hamingjusama :
Það er ekki erfitt, til að gera konu hamingjusama, þarftu bara að vera:

1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur

?og gleyma aldrei að:
44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hana ekki
49. horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:
50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

það er mjög áríðandi:
53. að gleyma aldrei:
afmælisdögum, brúðkaupsdögum og plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMENN HAMINGJUSAMA :
1. Gefa þeim að borða
2. Sjá til að þeir fái það reglulega
3. Þegja.

Allt saman mjög einfalt 8)

Tók þetta af síðunni hjá Huldu Klöru skólafélaga úr Kefló algjör snilld :haha:

Kv. Bernie


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 16:17:10 / birnam

Endalaus veikindi og bland í poka

Sæler

Vil byrja á því að afsaka ef myndirnar af stofunni hafa komið eitthvað bjagaðar út hjá ykkur, það er víst eitthvað mismunandi hvernig þær koma út hjá fólki hef ég heyrt. Þetta blog central dæmi á víst að minnka myndirnar en það er eitthvað ekki að virka.

Við erum loksins búin að mála eldhúsið og setja upp nýja eldhúsljósið okkar, það gekk að vísu eitthvað brösulega að ná því beinu, og var Agnar nánast búinn að missa geðheilsuna yfir þessu :evil: En það er bara allt annað að sjá þetta hjá okkur. Við vorum að vísu mjög gáfuleg, við frestuðum því að mála eldhúsið því okkur vantaði lista á einn vegg og Ingólfur pantaði hann fyrir okkur. Ok svo kemur listinn og kemur í ljós að hann er ekki alveg eins, en við klárum að málaog skellum listanum upp því maður tekur ekkert eftir því að hann er ekki eins. Daginn eftir förum við að taka til í geymslunni og sjáum þar lista eins og okkur vantaði. Ótrúlega gáfulegt par hér á ferðinni :lol:

Það hlaut að koma að því að Daníel yrði veikur, búin að vera dásama það að hann hafi alveg sloppið. En hann var kominn með kvef og óþverra á sunnudaginn og á mánudaginn kom hann veikur heim úr skólanum. Strauk að vísu úr gæslunni og fór heim því hann treysti sér ekki til að vera úti, og það var víst ekki til umræðu að hann yrði inni. Mér fannst það bara gott hjá honum að fara heim, greyið með dúndrandi hausverk, beinverki, illt í maganum og alveg augljóslega veikur :S Helga María var veik í annað skiptið í síðustu viku, lá alla síðustu viku, en er orðin hress núna. Ég byrjaði í annað skiptið núna fyrir helgi, fékk kvef og var drulluslöpp en er öll að koma til núna. Þetta er líka orðið gott, ég held að ég hafi bara aldrei vitað um önnur eins veikindi eins og undanfarið hér á Vopna.

Nokkrar staðreyndir hérna í restina um það hvernig það væri ef karlmenn væru óléttir ;)

 

Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...
Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp...
Væru menn æstir í að binda sig...
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum...
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin...
Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla...
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...
Myndu konur stjórna heiminum...

Ekki satt?

Kv. Bernie

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 20:57:51 / birnam

LAZY BOY!

Jæja, sælt veri fólkið.

Það er allt búið að vera á fullu á þessu heimili undanfarna daga. Það byrjaði nú ósköp sakleysislega einn morguninn þegar ég var að borða morgunmatinn og skoða moggann, ég þurfti endilega að sjá draumasófann minn. Kremlitaðan lazyboy sófa 8| það er ekki líkt mér að falla fyrir svona dauðum hlutum, en þarna kolféll ég og linnti ekki látum fyrr en hann var kominn inn stofu hjá mér 8) það þurfti náttúrulega að gera ýmislegt í leiðinni Agnari til mikillar ánægju og gleði :klikk: taka u.þ.b. 2.000 nagla og skrúfur úr veggjum í stofu og eldhúsi, spartla og fínisera því nú átti sko að mála, dugaði ekkert minna fyrir nýja sófasettið :lol:

en það er voða gaman af þessu, stofan er orðin svaka fín (þó ég segi sjálf frá) og það er bara himneskt að sitja/liggja/sofa í þessu, örugglega gott að gera ýmislegt fleira í þeim, er bara ekki búin að prófa enn sem komið er ;) annars eru sumir á heimilinu svo passasamir á sófann að það má varla anda á hann :P

hér eru svo fyrir og eftir myndir af hluta af stofunni, verð að monta mig aðeins ;)

fyrir

eftir

 

ég verð nú að fara passa mig því hugmyndirnar eru alveg á milljón í hausnum á mér, er í svo miklu "breyta&bæta" stuði. Kenni óléttunni um það, það er svo þægilegt :lol:

ég er nú samt ekki eins snobbuð eins og liðið sem er í innlit útlit. Jújú ok mjög fínir þættir, ég hef mjög gaman af því að horfa á þá, margar sniðugar hugmyndir sem koma þar fram en er þetta ekki farið út í svolitlar öfgar. Um daginn voru þau hjá Sigurjóni Brink og frú en þau voru nýbúin að kaupa sér hús og það þurfti að gjörbreyta eldhúsinnréttingunni því "kirsuberjaviðurinn er orðinn barns síns tíma" sagði frúin 8| jújú það getur vel verið en ef ég hefði þessa innréttingu í eldhúsinu hjá mér væri ég í skýjunum. Annars veit ég nú ekki hvað þessir þrímenningar myndu segja ef þau kæmu að skoða hýbílin mín :$

Svo er það bara svo mörg dæmi um að það er verið að gjörbreyta og endurnýja húsgögn og mublur þar sem allt er nýlegt og fínt. Skil þetta ekki, allt í lagi að hafa fínt hjá sér en það er ekki hægt að halda í alla tískustrauma sem koma og fara. Fólk hefur greinilega ekkert annað við peningana að gera... persónulega myndi ég frekar fara til útlanda 1 sinni eða oftar á ári heldur en að sóa peningum í óþarfa dauða hluti endalaust.

over and out

Bernie


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:23:11 / birnam

meðgangan...

Jæja, þá er maður á 24. viku meðgöngunnar. Er strax farin að vagga eins og mörgæs sökum grindarverkja, en það er þess virði. En pjakkurinn er mjög duglegur að hreyfa sig og stundum mætti halda að það væri fleiri en eitt kríli þarna á ferð!!!

Læt smá fróðleik fylgja hér með sem ég tók af ljósmóðir.is ;)

 Vika 24

Hægðatregða er einn meðgöngukvillunum sem gæti byrjað að gera vart við sig.  Breytingar á blóðrásarkerfi geta valdið því að blóðþrýstingurinn lækkar á þessu tímabili og því gætir þú fundið fyrir svima.  Þetta getur einnig gerst þegar þú liggur á bakinu vegna þess að legið sem alltaf verður þyngra og þyngra þrýstir þá á stóru bláæðina í kviðarholinu sem flytur blóð til hjartans frá neðri hluta líkamans.  Ef þú finnur fyrir svima þegar þú liggur á bakinu, skaltu snúa þér á aðra hvora hliðina.  Efri brún legsins er nú á móts við naflann. Þegar þú þreifar á barninu geturðu fundið fyrir hinum ýmsu líkamshlutum.

Nú eru skilningarvit barnsins að vakna til lífssins. Eftir að það er fætt gæti það munað eftir lögunum sem þú ert að syngja fyrir það núna. Einhvern daginn þegar þú ert alveg vitlaus í skapinu er barnið þitt sama sinnis og sparkar allt hvað af tekur. Það er mögulegt að börn sem fæðast við 24 vikna meðgöngu geti lifað af fái þau notið umönnunar á nýburagjörgæslu en það er þó alls ekkert öruggt í þeim efnum.  Stærsta vandamálið er að lungun eru ekki nógu þroskuð og þess vegna þarf fyrirburinn aðstoð við öndun.  Barnið er ennþá mjög grannt en fer að bæta á sig úr þessu.  Það vegur nú um  630 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 21 sm.

Líður ykkur ekki betur að vita þetta? 8) 

Kv. Bernie.


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2